Podcast ætlað iðkendum Absolute Training sem og öllum sem hafa áhuga á andlegri og líkamlegri þjálfun.

Beðmál um Bókmenntir: Hlaðvarp Um Heim Bókanna er í umsjón Kötlu Ársælsdóttur. Katla er verðandi bókmenntafræðingur og hefur mikinn áhuga á bókmenntum. Með hlaðvarpinu vill Katla sýna hlustendum fjölbreytileikann sem búa í bókmenntum á líflegan og skemmtilegan hátt.

Hlaðvarp um allt milli himins og jarðar tengt kvikmyndagerð!

Beinskeytt umræða um íslenskan körfubolta. 

Halldór Örn – Gunni Stef – Rúnar Ingi 

Umfjöllun um kvikmyndir, sjónvarpsþætti og annað myndefni.



Fjármálakastið

Fjármalakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadottir.

Fjölburaforeldrar ræða við aðra fjölburaforeldra um fjölburalífið

Vinirnir Sigursteinn Másson og Friðrik Agni spjalla um geðheilsu og andleg málefni út frá ólíkum sjónarhornum. Deila eigin sögum, heyra í fólki og endurspegla málin á einlægan og hreinskilin hátt.

Í þessum þáttum hitta Bryndís Alexanders og Kristján Pétur Sæmundsson áhugaverða einstaklinga sem hafa náð árangri á sínu sviði í atvinnulífinu. Við ræðum áskoranir og erfiðar ákvarðanir, bæði faglega og persónulega. Einstaklingurinn og ferilskráin þurfa að lifa í jafnvægi og allt sem er einhvers virði kallar á að fórna einhverju öðru í staðinn.

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is

Ketócastið með Hönnu Þóru og Hrönn Bjarna fjallar um allt sem tengist ketó matarrræðinu. Spjall, fróðleikur, lífið á ketó og viðtöl við skemmtilega einstaklinga

Pepp fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum barna og ungmenna.

Kvíða systkin sem finnst gaman að tala um allskonar málefni.

Í þættinum segja einstaklingar sem háð hafa baráttu við alkahólisma sögu sína af sigrum, ósigrum, sorginni og gleðinni á leið sinni í átt að batanum.

ListVarpið er 10 þátta sería þar sem Auður Bergdís, sviðslistakona og þúsundþjalasmiður fær til sín listafólk úr öllum áttum til að ræða Lífið og Listina.

Dans? Söngur? Leiklist? Myndlist? Rapp? Þetta er allt hér!

Líkimi.is hlaðvarp er í umsjón Björns Þórs Sigurbjörnssonar einkaþjálfara. Tilgangur hlaðvarpsins er að fá fólk úr ýmsum áttum til að ræða það sem viðkemur heilsu og heilbrigði. Það er fátt sem ekki viðkemur heilsunni í daglegu lífi hvort sem við áttum okkur á því eða ekki.

Hlaðvarpsþáttur þar sem vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín skyggnast inn í líf mæðra á Íslandi.

Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum, bæði innlent og erlent. Bragi fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.

Helga og Sunna ræða á léttum nótum um bachelor. Ræða hvern þátt fyrir sig og nýjasta slúðrið í bachelor-heiminum Einnig ræða þær aðra raunveruleikaþætti eins og Love Island. Hlaðvarpsþáttur um ástina, gleðina og lífið.

Ofurdeildin með Hjálmari og Vigni.

Pepp fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum barna og ungmenna.

Formúlu 1 podcastið. Kristján Einar og Bragi Þórðarson fjalla um allt tengt Formúlu 1, fara yfir allar keppnir og ræða stóru málin.

Þættirnir skiptast í almenna þætti (#) og umfjöllun um einstök Formúlu 1 mót (R)

Tölum um allt sem tengist fyrirtækjamenningu & vinnustaðastemmingu. Viðmælendur koma úr öllum áttum með allskonar reynslu og pælingar.

Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.

Teninga-Castið er almennt og allsherjar spjall um spunaspil og allan þann yndislega heim sem því tengist.

Þáttastjórnandi er Eyþór Árni Úlfarsson.

Spjall, reynslusögur og raunveruleikinn.

Guðrún og Íris spjalla um lífið og fá einnig til sín gesti.

Umræðuþættir um amerískan fótbolta.

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Helga Soffía og Sigga Ózk eru tvær tvítugar og týndar bestu vinkonur. Þær setjast niður einu sinni í viku og spjalla um lífið og tilveruna og hvernig það er að vera ung manneskja í samfélaginu í dag. Þær ræða allt á milli himins og jarðar alveg frá ást, vináttu og sjálfsímynd yfir í æði þeirra fyrir stjörnumerkjum og stjörnusnakki.

Auður Bergdís og Katrín Mist fá til sín bland í poka af áhugaverðasta fólki landsins, ræða um daginn og veginn ásamt því að lesa djúpt í nammismekk viðmælenda.

Við Vitum Ekkert er hlaðvarpsþáttur á vegum Elínar og Völu sem eru tvær ungar konur að velta fyrir sér ýmsu sem þær vita ekkert um!

Ég heiti Friðrik Agni. Ég trúi að við getum farið okkar eigin leiðir í lífinu. Við höfum öll ástríðu, hæfileika og tilgang en erum við að fylgja tilgangi okkar? Ég sjálfur hef farið óhefðbundnar leiðir í mínu lífi því ég læt stjórnast af draumum og markmiðum. Í hlaðvarpinu munum við kynnast allskyns fólki í samfélaginu sem ég tel fylgja eigin neista í lífinu. Hvað býr að baki? Hvaða hugarfar? Hvaða leið fer fólk?

Hlaðvarp um Þín eigin-bækurnar, leikritin og allt sem tengist Þín eigin-heiminum.

www.aevarthor.com

Líkt og í öllum þvottakörfum landsins þá er þar að finna mismunandi efni og mismunandi liti. Í þessum þáttum munum við einmitt ræða allt á milli himins og jarðar þegar kemur að íslenskum körfubolta. Tökum viðtöl við hetjur úr hreyfingunni og veltum fyrir okkur hlutum sem allir ættu að tengja við.

Podcaststöðin ehf.
  • Ert þú með hugmynd að podcast þætti í maganum? Heyrðu í okkur.
  • HeimilisfangNýbýlavegi 6-8, 200 Kópavogi
  • Símanúmer8201824
  • Símanúmer8696941
  • Heimasíðapodcast.is